Á
veturna er allra veðra von og eins gott að vera
við öllu búinn, vandræðin gera
ekki boð á undan sér. Erfiðleikar
gera þó í flestum tilfellum ferðina
bara skemmtilegri og eftirminnilegri.
Hér
á eftir koma nokkrar myndir í belg og biðu
til þess að gefa innsýn í ferðalög
á fjöllum.
Hægt er að smella á þær til
að sjá þær stærri á
skjánum.
Sumstaðar
eru ár og lækir undir snjónum sem myndar
veika þekju yfir.Oft brestur undan fyrsta bíl
og getur staðan litið illa út.
Í
best útbúnu jeppum í dag eru bæði
gerfihnattar GPS tæki og fartölvur sem taka gögnin
frá GPS-inum og reikna út á landakorti
á skjánum staðsetningu bílsins
með undaraverðri nákvæmni.Farsímar
og talstöðvar eru nauðsynleg öryggistæki
sem enginn skildi fara á fjöll án.
Um
leið og eitthvað krassandi skeður er myndavelin
það fyrsta sem menn draga upp og munda fimlega.
Hliðarhalli
getur litið skelfilga út en í þessu
tilfelli brotnaði ís yfir Jökulgilskvíslina
undan framhjóli Toyotunnar.
Við
ár eru víða háar skarir sem geta
verið varasamar.
Þegar
ís brotnar undan framhjóli dettur bíllinn
niður að framan en lyftist upp að aftan, þá
getur verið ansi hátt að hoppa niður.
4
saman á Langjökli
Oft
sést ekkert nema hvítt út um gluggann
, en hér sést vel til Skjald-breiðar.